Gæsadalur í Vaðlaheiði. Haustlitaferð
DAGS
Kl.
10-15
BROTTFÖR Kl.
10
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services

Lýsing
1-2 skór
13. september, sunnudagur
Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23
Safnast saman í bíla ef vill.
Fararstjórn: Una Þ. Sigurðardóttir
Gengið frá bílastæðinu efst á Víkurskarði og norður Gæsadal að Gæsagili. Góðar götur, mest kindagötur og lítil hækkun nema upp frá bílastæðinu. Á þessum tíma eru haustlitir í Vaðlaheiðinni einstaklega fallegir þar sem mikið er um lyng. Sama leið farin til baka. Gott getur að vera með göngustafi. Lítið vatn er á leiðinni og því nauðsynlegt að taka með dykkjarvatn.
Vegalend alls 14–15 km. Gönguhækkun: 100-120m.
Verð: 2.200 / 3.900 kr. Innifalið: Fararstjórn.
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.
ATH. Þegar skráningu í ferð er lokið kemur svar í tölvupósti. Þið sem eruð með @gmail.com athugið í ruslpóstinum ef skráning skilar sér ekki til ykkar.
Búnaður
Gönguferðir: 1 skór
Léttar og stuttar ferðir: Stuttar dagleiðir, 4 - 6 klst. Mest gengið á sléttlendi. Engar eða litlar ár. Léttur dagpoki. Flestum fært.
Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:
Góðir skór sem ætlaðir eru til dagsferða og jafnvel göngustafir.
Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf
Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi
Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi, verkjalyf og annað smálegt
Viðeigandi fatnaður, húfa, vettlingar, hlífðarföt og regnföt
Vatn/drykkir og nesti til dagsins (einnig göngunasl)
Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar og buff




